#8: Silja Úlfars - Klefinn.is kynnt til leiks

aðeins meira en bara GYM - Un podcast de Útvarp 101

Silja Úlfarsdóttir, fyrrum afrekskona í frjálsum er viðmælandi þessa fyrsta þáttar 2020. Silja hefur í gegnum tíðina unnið með fullt af íþróttafólki úr ýmsum greinum. Þá hefur hún þjálfað það í snerpu og hlaupastíl og þjálfar bæði atvinnumenn, unglinga og unga krakka. Á dögunum setti hún af stað verkefni sem heitir Klefinn.is og er nýr fjölmiðill fyrir íþróttafólk. Í ljósi umræðna um íþróttafólk og styrki frá fyrirtækjum síðasta haust fannst Silju hún knúin til að demba sér í þetta verkefni en hún hafði lengi gengið með hugmyndina. Þátturinn er á vegum Útvarp 101.