Verkfærakassinn 2 - Dáleiðsla

ÞÚ skiptir máli - hlaðvarp - Un podcast de Þú skiptir máli forvarnastarf

Catégories:

Í öðrum þætti Verkfærakassans ræðir hún Hrabbý við hann Bjarna Steinar Kárason einkaþjálfara, en hann hefur þróað meðferðarform þar sem hann blandar saman dáleiðslu og markþjálfun. Og í seinni hluta þáttarins fær hún svo einn af skjólstæðingum Bjarna í heimsókn til sín þar sem hann segir okkur aðeins frá sinni reynslu af dáleiðslu og þeim árangri sem hann hefur náð. Þáttarstjórnandi : Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir Í þessum þáttum ætlum við að skoða ýmsar áhugaverðar leiðir til sjálfshjálpar, leiðir sem oft teljast óhefðbundnar eða fyrir utan normið. Leiðir sem af mörgum teljast framandi og jafnvel í sumum tilfellum forboðnar eða furðulegar. Við ætlum að setja á okkur spæjarahattinn og halda á stað í rannsóknarferð þar sem við hittum áhugavert fólk og fjölgum verkfærunum í sjálfshjálparkassanum okkar. Við hlökkum til að læra ýmislegt nýtt og spennandi og vonum að þið njótið ferðalagsins með okkur.