Æðruleysið - 5. Þáttur / Nökkvi Fjalar
ÞÚ skiptir máli - hlaðvarp - Un podcast de Þú skiptir máli forvarnastarf
Catégories:
Verið velkomin/nn í Æðruleysið Í þáttunum fjallar hún Þórdís Jóna markþjálfi um hin ýmsu málefni og bendir á leiðir til bætts lífs. Í þessum fimmta þætti fær Þórdís Jóna ungan atorkusamann mann og góða fyrirmynd hann Nökkva Fjalar Orrasson í spjall um sjálfsmynd drengja og þau velta jafnframt fyrir sér mikilvægi sjálfsmyndar og uppbyggingu hennar. Í spjalli þáttarins er farið víða og m.a. yfir það hversu mikilvægt það er að eiga góð og innihaldsrík samtöl við drengi jafnt sem stúlkur og almennt okkar allra á milli. Markmið okkar með þáttunum er að halda á lofti því að við erum öll mannleg, gerum mistök, lærum og vöxum eins lengi og við höfum aldur til. Leiðarljós þáttarins eru : Styrkur - Fræðsla – Skemmtun þáttastjórnandi : Þórdís Jóna Jakobsdóttir http://www.thuskiptirmali.is