19. Gunnur Líf Gunnarsdóttir - Samkaup

Á mannauðsmáli - Un podcast de Á mannauðsmáli

Catégories:

Gestur þáttarins kom í heimsókn í Nóa Síríus-stúdíóið í Podcaststöðinni og heitir Gunnur Líf Gunnarssdóttir og er framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá Samkaupum. Við Gunnur ræddum um öfluga vinnustaðamenningu hjá Samkaup, hvað liðsheildin er sterk og hversu mikilvægt það er að halda vel utan um starfsfólkið sitt. Hún tók við starfinu fyrir um tveimur árum og lagði strax mikla áherslu á að kynnast störfunum og fólkinu, fór hringinn í kringum landið og raðaði snakkpokum í hillur. Með þessu fannst henni tengslin styrkjast bæði við starfsfólkið og til þess að fá innsýn í störfin sjálf. Út frá þessari þekkingu hafði hún tækifæri til þess að bæði taka ákvarðanir og leiðbeina starfsfólki. Við ræddum einnig öfluga fræðslumenningu hjá þeim og margt fleira áhugavert sem þau hafa unnið að seinustu ár. Þátturinn er í boði Alfreð og Origo.